Onion Open 2010

Góðan dag,

Ákveðið hefur verið að halda þetta aðra helgina í september,  og mótið sjálft því 11 sept. 

Ástæðan er að það spáir betur þá helgina.  Við ætlum nefnilega að plata veðurguðina í ár J

Með kveðju,

OO Nefndin

 

jogolf1Onion OpenGolfkúla Onion Open Club copy


 

 

Sælir/ar frændur og frænkur.

 Þá er komið að  

Onion Open 2010

 

Eins og menn kannski vita var nokkurn veginn ákveðið að halda þetta alltaf 1 helgina í september og á okkar yndisfögru Heimaey.

 Í þessum rafpósti er ætlunin að fá skráningu þeirra sem ætla að vera með í mótinu sjálfu.  Endilega sendið staðfestingu á mig sem fyrst.

 Ég, Vignir Andersen og Heiðar Austmann hittumst létt um daginn og fórum yfir uppskriftina af Irish Coffie og var einnig ákveðið á þessum 2ggja manna fundi að Landslaukar myndu endurheimta ALLA Bikara sem í boði eru á þessu móti núna í ár.  Engin mótmæli bárust og var þetta því samþykkt.

Við eigum eftir að kjósa í frekari nefnd varðandi mótið og óskum við eftir Landslaukum í þá annars ágætu nefnd. 

Annars er þetta eins og áður sagði SKRÁNINGARPÓSTUR í mótið.  Öll dagskrá verður auglýst MIKLU síðar ef ekki bara ENNÞÁ SEINNA eða þá að það verða bara skilaboð á dyrinni vinstra megin við stöngina á miðjunni hægramegin.

KOMA SVOOOOOO, endilega látið þá vita sem ekki hafa það í sér að líta á tölvuskjái reglulega og gerum þetta mót enn skemmtilegra í ár. 

Með bestu kveðju,

Vignir og Heiðar


Eyjalaukar með alla bikara

Eyjalaukarnir gerðu sér lítið fyrir og hirtu alla bikara af Hitaveitulaukum á Onion Open golfmótinu sem fór fram í Eyjum fyrstu helgina í sept.

Ekki hefur enn náðst í neinn Eyjalauk til að setja inn myndir af mótinu og verðlaunahöfum  né hver vann hvað enda eru þeir enn að fagna. Til hamingju Eyjalaukar þið eruð bestir...


Onion Open skráning

 

Sælir frændur

Nú er komið að því að skrá sig á Onion Open sem verður haldið í Eyjum

Hægt er að skrá sig fyrir  31 ágúst  hjá Viktori.  Drífa sig að skrá sig það verður svaka stuð Gylfi Viðar er núna úti á sjó að  semja skemmtiatriði  þau verða rosaleg,  betri en á ættarmótinu. Allir að skrá sig hja Viktori Guðna í síma 481 2366 og e-mail  bjarnarey@.internet.is

 

 Strákarnir komnir á 14 braut og vallarstarfsmenn að vinna við 13 braut


Midnight Mini Onion Open

Strákarnir / Laukarnir skelltu sér í golf enda dauður tími frá kl 02:00 - 07:00 á golfvellinum. Fengum að vera þarna í friði enda búnir að greiða vallargjöld og ekki var óreglan trufla þessa vösku golfsnillinga. Skorið var bara gott enda blankalogn og hlýtt þarna um nóttina.

                                                                                                                                                             holl_kl_0200.jpgAgjör zniilllld og hefðum ekki viljað missa af þessu tækifæri og völlurinn á frábæru standi fyrir utan 3 grín á Hamrinum. Vallarstarfsmenn voru komnir snemma til að slá og snyrta enda íslandsmeistaramót að hefjast kl 08:00. 

 

 

 Vaskir sveinar mættir á teig kl 02:00 


Onion Open helgina 4 og 5 sep 2009 í Eyjum

Kæru frændur og frænkur

 

Eftir mikla fundasetu í kvöld 24 april 2009  og nokkra bjóra  ákvað  stjórnin að halda Onion open helgina 4 og 5 sep  2009 í eyjum.Og búið er að skipa í skemmtinefnd og fl.Kosið verður á morgun í nefndir eftri 2 IRIS COFFE. Dagskráin verður auglýst síðar og þetta verður ekki heima að sofa kl 00,00 eins og  Flúða mótið fór.

 

Kveðja stjórnin

 

Óskar Þór

Victor Guðna

Daði Páls

Gylfi Viðar


Það styttist í Onion Open

Vestmanneyjavöllur 12.04.09Hlöbbi Guðna kíkti á Eyjavöllinn um páskana. Ekki hægt að segja annað en að völlurinn lofi góðu. Hitti Kristgeir Orra sem er kominn af stað með nýtt æfingarprógram og ætlar greinilega að hefna ófaranna frá því síðasta sumar. Drengurinn er kominn í hörku form og náði sér í páskaegg á Páskamótinu í verðlaun. En það verður ekki spilað um páskaegg á Onion Open. Þar er spilað upp á heiður og æruna og að koma nafninu á Dollurnar.

Næsta Onion Open verður 4-5 sept 2009

Það hefur verið ákveðið að hafa næsta Onion Open í Eyjum fyrstu helgina í september þ.e 4-5.

Það er því ekki seinna vænna að fara að panta far með Herjólfi fyrir bílinn og golfsettið.

Landsliðlaukar eiga titil að verja og verður örugglega allt gert til að tryggja að bikarinn fari ekki í þriðja skiptið í röð á malbikið.

Onion Open hópurinn

 

 Þessi mynd var tekinn á síðasta golfmóti Laukanna  í Eyjum. Fárviðri gekk yfir landið og öllum skólum lokað og flotinn kallaður í land vegna veðurs. Bílar fuku fram og til baka, tré og hús slitnuðu upp með rótum og eitt fjall fauk af hálendinu og breyttist í sandkassa einhverstaðar á vesturlandi. En þessir gæjar..........

 

 


Gleðileg Jól Laukar

Gleðileg Jól Laukar og farsælt komandi golfár og takk fyrir það liðna

Onion Open 2008 úrslit

jogolf1

 

 

 

 

 

Landsliðslaukar unnu Liðakeppni

Hlöðver S Guðnason vann forgjafarbikarinn

Hlöðver sigurvegari m / forgjöf

 

 

 

 

 

 

Vignir Hlöðversson vann höggleiksbikarinn

Vignir Hlöðvers sigurvegari í höggleik

 

 

 

 

 

 

Birgir Davíð Kristjáns og Ásgeir Emil unnu púttkeppnina

Birgir Davíð

 

 

 

 

 

 

 

Sigríður Hlöðversdóttir vann vippkeppnina

Sigríður Hlöðvers

 

 

 

 

 

 

 

Hlölli G var með nákvæmasta teighöggið ca 260 m og 1 metra frá miðlínu

Kristgeir Orri var með lengsta teighöggið ca 270 m

Besta nýting vallar: Óli Bernharðs

Bestu tilþrif: Gísli G 

Verðaun fyrir að vera næst holu:

Hola 1 Hlöbbi G

Hola 9 Vignir Andersen

Hola 11 Gylfi Guðmundsson

Hola 14 Vignir Hlöðversson

Hola 16 H Guðnason


Stórsigur hjá Hitaveitulaukum

Já sæll þarf eitthvað að ræða þetta frekar, ekki spurning hvort liðið var betra. 

Landsliðslaukar í sigurvímu


Næsta síða »

Höfundur

Hlöðver Guðnason

Hér er ekki allt heilagur sannleikur...

Þar sem tveir laukar koma saman er....

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndböndin

Happy Gilmore

Upphitun fyrir Onion Open

Verðlaunaafhending fyrir Onion Open 2005

Gylfi Viðar

Kynning fyrir Onion Open  gólfmótið 2007

Tónlistarspilari

El Puerco og Ennisrakaðir - Forhed shaved

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband